ÍR vann í kvöld Hauka, 24-20, í 8-liða úrslitum Símabikarsins í handknattleik en leikurinn fór fram í Austurberginu í Breiðholtinu. ÍR-ingar léku frábærlega í kvöld og náðu mest 10 marka forystu um miðjan síðari hálfleik.
↧