ÍR tryggði sér í dag sigur í Símabikar karla í handbolta þegar liðið lagði 1. deildarlið Stjörnunnar 33-24 í úrslitaleiknum í Laugardagshöll í dag. Yfirburðir ÍR voru miklir þó Stjarnan hafi barist af krafti í leiknum.
↧