Afturelding gerði sér lítið fyrir og skellti Akureyri 32-26 á heimavelli sínum að Varmá í kvöld. Afturelding lagði grunninn að sigrinum með frábærri byrjun og vann afar sannfærandi sigur á andlausu Akureyrarliði.
↧