Djokovic og Nadal komast báðir í sögubækurnar með sigri í dag
Serbinn Novak Djokovic og Spánverjinn Rafael Nadal mætast í dag í úrslitaleik franska meistaramótsins í tennis en þeir eiga báðir möguleika á því að komast í sögurbækurnar með sigri.
View ArticleSpánverjar náðu bara jafntefli á móti Ítölum
Heims- og Evrópumeistarar Spánverja byrjuðu titilvörn sína á 1-1 jafntefli á móti Ítalíu í fyrsta leiknum í C-riðli á Evrópumótinu í fótbolta.
View ArticleBenzema: Hef fengið tilboð frá Manchester United síðastliðin þrjú ár
Karim Benzema, leikmaður Real Madrid og franska landsliðsins, hefur nú staðfest að Manchester United hafi reynt að fá leikmanninn til liðsins undanfarinn þrjú tímabil.
View ArticleBjörgvin spilar með ÍR - ÍR-ingar streyma heim í Breiðholtið
Handknattleiksmaðurinn Björgvin Hólmgeirsson hefur gert tveggja ára samning við ÍR og mun spila með nýliðunum í N1 deild karla næsta vetur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ÍR.
View ArticleUsain Bolt lenti í bílslysi en slasaðist ekki
Spretthlauparinn Usain Bolt lenti í bílslysi rétt hjá heimili sínu fyrr í dag en samkvæmt fjölmiðlafulltrúa Bolt slasaðist hann ekki.
View ArticleHamilton sjöundi sigurvegarinn í jafnmörgum mótum
Lewis Hamilton á McLaren er sjöundi sigurvegari ársins í jafn mörgum mótum. Hann sigraði Kanadakappaksturinn eftir æsispennandi kappakstur.
View ArticleÞór/KA með fjögurra stiga forskot á toppnum
Þór/KA er komið með fjögurra stiga forskot á Íslandsmeistara Stjörnunnar á toppi Pepsi-deildar kvenna í fótbolta eftir 4-0 sigur á Aftureldingu í Mosfellingum í kvöld.
View ArticleKróatar skoruðu þrjú mörk hjá Írum
Mario Mandzukic, framherji þýska liðsins VfL Wolfsburg, skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Króata á Írlandi í kvöld í fyrsta leik liðanna í C-riðli Evrópumótsins í fótbolta.
View ArticleVicente del Bosque kenndi þurrum velli um
Vicente del Bosque, þjálfari Spánverja, var ósáttur með leikvöllinn í Gdansk í dag þegar Spánverjar náðu aðeins 1-1 jafntefli á móti Ítölum í fyrsta leik sínum á EM. Spænska liðið var fyrir leikinn...
View ArticleUmfjöllun og viðtöl: Ísland - Holland 41-27
Íslenska landsliðið í handknattleik vann mjög þægilegan sigur á Hollendingum, 41-27, í fyrri leik liðanna um laust sæti á HM á Spáni 2013. Ísland byrjaði leikinn nokkuð illa en komst fljótlega í takt...
View ArticleMarwijk: Ekki hægt að skella skuldinni á van Persie
Bert van Marwijk, landsliðsþjálfari Hollendinga, ver framherjann sinn Robin van Persie í fjölmiðlum í dag en Persie misnotaði fjölmörg færi gegn Dönum á Evrópumótinu í knattspyrnu í gær.
View ArticleFabregas spilaði fremstur: Þetta kom mér á óvart
Vicente del Bosque, þjálfari Spánverja, kom mörgum á óvart í upphafsleik liðsins á EM í dag með því að láta Cesc Fabregas spila fremstan í 1-1 jafnteflinu á móti Ítalíu.
View ArticleNadal og Djokovic klára ekki fyrr en á morgun | Frestað vegna rigningar
Rafael Nadal og Novak Djokovic náðu ekki að klára úrslitaleik sinn á opna franska meistaramótinu í dag því það varð að fresta leik vegna rigningar. Leik verður framhaldið klukkan 11 í fyrramálið.
View ArticleSvíar í erfiðri stöðu fyrir síðari leikinn gegn Svartfellingum
Svíar lentu í kröppum dansi gegn Svartfellingum í umspilsleik um laust sæti á HM í handbolta sem fram fer á Spáni 2013. Svíþjóð rétt marði sigur 22-21 og kom sigurmarkið alveg á síðustu andatökum...
View ArticleMeð níu tær inn á HM á Spáni - myndir
Íslenska karlalandsliðið í handbolta er í fínum málum í umspili fyrir HM í handbolta eftir fjórtán marka sigur á Hollandi í fyrri leik liðanna. Íslenska liðið má því tapa með þrettán marka mun í seinni...
View ArticleDagur 3 á EM í fótbolta í myndum
Króatar byrja vel á EM og eru á toppnum eftir fyrstu umferðina í C-riðli Evrópumótsins í fótbolta eftir 3-1 sigur á Írum í kvöld. Spánverjar og Ítalir gerðu aftur á móti 1-1 jafntefli í fyrri leik...
View ArticleGiroud á leið til Arsenal
Allar líkur eru á því að sóknarmaðurinn Olivier Giroud muni spila með Arsenal á næstu leiktíð, ef marka má ummæli knattspyrnustjóra Montpellier.
View ArticleDortmund: Lewandowski fer hvergi
Forráðamenn þýska úrvalsdeildarfélagsins Dortmund þvertaka fyrir fréttir þess efnis að sóknarmaðurinn Robert Lewandowski sé á leið frá félaginu og til Manchester United.
View ArticleHelga: Von á ákvörðun fyrir helgi
Helga H. Magnúsdóttir, sem á sæti í mótanefnd EHF, á von á því að ákveðið verði í vikunni hvar EM kvenna í handbolta verði haldið í desember næstkomandi.
View ArticleAndersson ætlar að hjálpa Svíum
Kim Andersson mun spila seinni leikinn með Svíum gegn Svartfjallalandi en hann hafði upphaflega ekki gefið kost á sér í verkefnið.
View Article